Fyrir forritið
„EmpowerYOUth er 22 mánaða Erasmus+ fjármagnað verkefni sem miðar að því að styðja andlega velferð og seiglu ungs fólks á aldrinum 14–18 ára. Verkefnið útvegar æskulýðsstarfsmönnum, náms- og starfsráðgjöfum, kennurum og öðrum sem styðja ungmenni hagnýt verkfæri til að hjálpa unglingum að takast á við áskoranir bæði í skóla og daglegu lífi.
Verkefnið byggir á árangri tveggja fyrri alþjóðlegra verkefna, BUILD og I-YOU, sem könnuðu málefni sem ungmenni sjálf skilgreindu sem mikilvæg, þar á meðal fjölskyldutengsl, vináttu, kvíða, andlega heilsu og samskipti í samfélagsmiðlum. Rannsóknir og tilraunaverkefni sem notuða samtalstækni með Sókratískri aðferð og hagnýtum bjargráðum sem byggja á kenningum hugrænnar atferlismeðferðaraðferðar (e. cognitive behavioral therapy) og díalektískri atferlismeðferðarað (e. dialectical behaioral therapy) geta hjálpað ungmenni að styrkja seiglu, öruggari og nærliggjandi stuðningsnet.
EmpowerYOUth sameinar samstarfsaðila frá Íslandi, Búlgaríu og Ítalíu. Verkefnið var formlega opnað með fundum sem stóðu yfir í tvo daga í Reykjavík þar sem samstarfsaðilar deildu niðurstöðum úr ungmennakönnunum í hverju landi. Ungmenni bentu, auk hefðbundinna áhyggna af andlegri heilsu, á auknar áhyggjur af einsemd, streitu og fjármálalæsi.
Kjarni EmpowerYOUth er notkun einfaldra bjargráða sem þróuð voru í I-YOU verkefninu (kort). Þessi verkfæri hjálpa ungmennum að íhuga tilfinningar sínar, styrkja samskiptahæfni, stjórna streitu og þróa heilbrigð bjargráð. Mikið af bjargráðunum byggja á hugrænum atferlismeðferðaraðferðum (HAM), sem miða að því að breyta óhjálplegum hugsanamynstrum eða hegðun, og díalektrískri atferlismeðferð (DAM), sem leggur áherslu á tilfinningastjórnun, núvitund og árangursrík samskipti. Mikilvægt er að EmpowerYOUth er ekki aðeins ætlað fagfólki sem vinnur með ungmennum; foreldrar geta einnig haft gagn af mörgum verkfærum og hugmyndum verkefnisins, sem hægt er að nota heima til að styðja við opin samskipti, tilfinningavitund og bætta andlega heilsu.
Með samstarfi milli landa og menningarheima stefnir EmpowerYOUth að því að bjóða upp á hagnýta og aðgengilegt námsefni til að styðja ungmenni við þroska sinn, svo þau geti tekist á við áskoranir með sjálfstrausti, seiglu og vellíðan.
Hvernig námskeiðið er byggt upp
Tímalengd: Námskeiðið stendur yfir í 8 vikur, kennt í 40–60 mínútna tímum einu sinni í viku.
Val nemenda: Í upphafi námskeiðs fara allir nemendur í kynningarnásmþáttinn og svo námsþátt um gildi og tilgang (tvær kennslustundir). Þessir námsþættir hjálpa nemendum að kanna hvað skiptir þeim mestu máli, skilja hvernig gildi hafa áhrif á ákvarðanir og hegðun, og þróa sameiginlegt tungumál fyrir íhugun, tilfinningar og ákvörðunartöku í gegnum námskeiðið.
Nemendur velja svo 5 námsþætti til viðbótar úr þeim sem eftir eru, sem gerir námskeiðið sveigjanlegt og miðar að því sem nemendum finnst mikilvægt og viðeigandi hverju sinni.
Námsþættir eru: Gildi, kvíði, andleg heilsa, líkamsímynd, vinir, fjölskylda, kynlíf, samfélagsmiðlar, einsemd, einelti, peningar og skólastreita.
Leiðbeiningateymi: Námsþættum er stýrt af tveimur þjálfuðurum, t.d. æskulýðsstarfsmönnum, náms- og starfsráðgjöfum, kennurum, félagsráðgjöfum eða sálfræðingum.
Virk þátttaka: Nemendur taka þátt í umræðum, rýnihópum og svara spurningalistingum og taka þannig virkan þátt í námsferlinu.
Stuðningur við tilfinningavitund og seiglu
Forritið leggur áherslu á að hugsanir okkar hafi áhrif á tilfinningar og hegðun. Nemendur læra að þekkja algengar hugsanaskekkjur og óhjálpleg hugsanamynstur, t.d.:
Hugsanalestur: Að gera ráð fyrir að við vitum hvað aðrir hugsa án sönnunar.
Hörmungaspá: Að spá fyrir um neikvæðar afleiðingar í framtíðinni.
Ýkjur og smættun: Að ýkja neikvæða renslu og smætta jákvæða renslu.
Allt-eða-ekkert: Að sjá aðstæður sem algjörlega góðar eða algjörlega slæmar.
Nemendur æfa einnig aðferðir til að bregðast við þessum hugsunum, t.d.:
Skoða öll tiltæk gögn.
Íhuga aðrar útskýringar.
Meta hversu líklegt er að hörmungarspá rætist.
Spyrja: „Hvaða ráð myndi ég gefa vini sem hugsar svona?“
Námskeiðið byggir á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar sem sýna að með því að breyta óhentugum hugsanamynstrum eða hegðun getum við bætt líðan. Seiglu nemenda verður metin fyrir og eftir námskeið til að fylgjast með árangri.
Öruggur og styðjandi vettvangur
EmpowerYOUth skapar öruggt rými fyrir ungmenni til að ræða viðkvæm mál, greina persónuleg gildi og styrkleika, og læra hvar hægt er að leita hjálpar ef þörf krefur. Námsefnið er sérsniðið að þörfum unglinga og hvetur til íhugunar, opinnar umræðu og virðingar/góðvild gagnvart náunganum.
Forvarna- og hagnýtt gildi
Námskeiðið hjálpar ungmennum að skilja daglegar áskoranir betur, þróa bjargráð og byggja upp tilfinningavitund. Með því að sameina uppbyggðar einingar og hagnýt sjálfshjálpartæki (kort) fær ungmenni tækifæri til að þróa færni sem þau geta notað í skóla, heima og í daglegu lífi.
Fyrir foreldra
Foreldrar gegna mikilvægu hlutverki við að styðja velferð barna sinna, sérstaklega á unglingsárum – tímabil aukins sjálfstæðis, þróun sjálfsmyndar og mikillgar tilfinningalegra breytinga. Þó ungmenni leiti eftir sjálfstæði þá er áframhaldandi stuðningur og nærvera foreldra lykilatriði fyrir andlega heilsu ungmennanna.
Mörg verkfæri og aðferðir sem notaðar eru í EmpowerYOUth má einnig nýta heima, sem hjálpar fjölskyldum að eiga opin og árangursrík samskipti, greina tilfinningabreytingar og stuðla að heilbrigðum bjargráðum og samskiptum.
Þvermenningarlegt samstarf
EmpowerYOUth er samstarfsaðgerð milli Íslands, Búlgaríu og Ítalíu og sameinar alþjóðlega sérfræðiþekkingu í æskulýðsstarfi, ráðgjöf og andlegri heilsu. Með því að deila þekkingu og aðferðum milli landa tryggir verkefnið að áhrifaríkar, gagnreyndar aðferðir nái til ungs fólks víða um Evrópu.“
Hafðu samband
info@empoweryouth.eu